|
Elan skíðin eru framleidd af samnefndu fyrirtæki í Slóveníu sem stofnað var árið 1945. Elan hefur ávallt verið framsækið í hönnun á skíðum og til marks um það má nefna að Elan var fyrst á markaðinn með Carving skíði. Öll keppnisskíði frá Elan í dag eru með sambyggðri plötu og bindingum en það tryggir snarpari svörun við hreyfingum skíðamannsins auk þess sem það einfaldar mjög tilfærslu á bindingum. Keppnisskíðin eru byggð á svokallaðri Waveflex tækni en hún lágmarkar vinding á skíðunum um leið og sveigjanleiki þeirra er hámarkaður. Bróðurparturinn af skíðalandsliði Íslands í dag skíðar á Elan skíðum. |